Osteópatía getur hjálpað við flest þau vandamál sem stafa frá lið- og vöðvakerfi líkamans. Nokkur dæmi um það eru:
- Bakverkir, með eða án leiðandi verkja.
 - Hálsverkir
 - Verkur eða stífleiki í liðamótum (t.d. öxlum, mjöðmum, olnbogum og hnjám)
 - Gigtarverkir og vefjagigt
 - Íþróttameiðsl
 - Leiðandi verkir út í hendur eða fætur
 - Höfuðverkir, mígreni, svimi og fleira ef upptök eru frá stoðkerfi
 - Bráða sem króníska verki
 
Osteópatía er fyrir unga sem aldna, íþrótta- og skrifstofufólk.