(eitt af bláu húsunum í Faxafeni)
108 Reykjavík
Haraldur Magnússon
Haraldur útskrifaðist frá The British School of Osteopathy í London árið 2002. Hann stofnaði Osteópatafélag Íslands sama ár og gegndi starfi formanns félagsins frá stofnun til ársins 2026.
Bakgrunnur
Árið 1996 ákvað ég að verða meðferðaraðili, eftir að hafa starfað í mörg ár við að hjálpa fólki með æfingar og næringu. Til að velja hvað ég ætlaði að læra skoðaði ég mörg mismunandi meðferðarform og valdi osteópatíuna vegna þess hversu fjölhæf og heildstæð hún er. Osteópatían hefur fjölhæfustu verkfærakistuna til að takast á við stoðkerfavandamál af öllum þeim meðferðarformum sem ég hef kynnt mér. Þrjátíu árum síðar stend ég enn við val mitt.
Sérhæfing og áhugamál
Helsta áhugamál mitt hefur ávallt verið almenn heilsa, með sérstakri áherslu á áhrif næringar á líðan og líkama. Í gegnum árin hef ég sótt fjölda námskeiða og fyrirlestra á sviði næringar, streitustjórnunar, functional medicine og hreyfingar.
Meðferð
Ég býð upp á almenna osteópatíu fyrir stoðkerfavandamál, með áherslu á samspil lífstíls og heilbrigðis, og áhrif þeirra á stoðkerfið.
Haraldur er í leyfi frá störfum og tekur ekki að sér nýja skjólstæðinga eins og stendur.